Presturinn, ástkona hans og fasteignasalinn 28. október 2007 12:11
Ítalir ræða fátt annað þessa dagana en fréttir frá þorpinu Monterosso þar sem presti staðarins hefur verið vikið úr starfi fyrir að eiga ástkonu í þorpinu. Sjálfur segir presturinn, Don Sante Sguotti, að fasteignasali sem falast hefur eftir landi í eigu kirkjunnar hafi komið af stað orðrómi um að hann ætti barn með ástkonu sinni. Hinn 41 árs gamli Don Sante hefur mátt horfa upp á alla fjölmiðla Ítalíu greina nákvæmlega frá sambandi sínu við Lauru, einstæða konu í þorpinu sem hann hefur þjónað síðustu átta árin. Raunar neitar Don Sante því ekki að eiga í ástarsambandi við Lauru en hann segir sambandið andlegt og ekki holdlegt og því ekki í andstöðu við kennisetningar kaþólsku kirkjunnar. Og síðan kemur til sögunnar fasteignasalinn hr. Villani. Hann hefur lengi haft augastað á landi sem er í eigu kirkju þeirrar sem Don Sante hefur þjónað. Don Sante hefur hinsvegar þvertekið fyrir að selja honum landið og ásakar nú hr. Villani um rógburð af verstu gerð til þess eins að koma sér úr embætti. Don Sante er mjög vinsæll meðal þorpsbúa og hefur ungt fólk þar á bæ tekið til við að klæðast stuttermabolum með áletruninni: Don Sante er faðir minn." Þetta hefur valdið kirkjuyfirvöldum á Ítalíu miklu hugarangri því töluvert hefur verið um kynlífshneyksli þetta árið meðal presta landsins. Því var ákveðið að víkja Don Sante úr embætti. Hinsvegar tókst honum að skilyrða brottför sína þannig að hr. Villiani yrði ekki selt land það sem hann ásælist.
Mest lesið Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Segist saklaus Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Erlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Veður Fleiri fréttir Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Sjá meira