Peningastefnan virkar ekki 15. febrúar 2007 06:45 Ólafur Ísleifsson. Ólafur, sem er lektor við Háskólann í Reykjavík, hvetur til fordómalauss samanburðar á evru og krónu. MYND/GVA
Heldur hallaði á krónuna á málþingi sem nemendafélag viðskiptafræðinema við Háskólann í Reykjavík boðaði til í hádeginu í gær undir yfirskriftinni „Evran eða krónan“. Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, hvatti til fordómalausrar umræðu um gengismál hér og kallaði eftir hlutlausri úttekt þar sem metinn yrði kostnaður við að taka upp evru og borinn saman við kostnað sem því fylgdi að búa við núverandi kerfi áfram. Hann benti á að verðbólgumarkmið með fljótandi gengi sem hér var tekið upp árið 2001 hafi í raun verið „þvingaður leikur“ og mætti kalla tilraun þar sem slíkt hafi ekki verið reynt í jafnlitlu hagkerfi áður. „Og árangurinn liggur fyrir,“ segir hann. „Háir vextir, mikill vaxtamunur við útlönd, óstöðugleiki í gengi krónunnar, óviðunandi viðskiptahalli, hættumerki á vettvangi fjármálastöðugleika.“ Þarna segir hann kominn aðdraganda þeirra efasemda sem vart verði víðs vegar í þjóðfélaginu um ágæti núverandi fyrirkomulags. Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans, benti á að gengi evrunnar ætti líklega eftir að lækka og það hentaði ekki ríkjum með mikinn hagvöxt líkt og hér væri. Aðalsteinn Leifsson, lektor við HR, taldi ráð að huga að Evrópusambandsaðild og Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, taldi rétt að horfa á aðra möguleika en krónuna þar sem peningastefnan sem hér væri rekin skilaði ekki því sem vonast hafði verið til.
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Innlent Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Innlent Náðar spilltan fógeta Erlent Fleiri fréttir Erfiðast að læra íslenskuna Afnema lengri opnunartíma í ákveðnum leikskólum borgarinnar Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Utanríkisráðherra Bretlands á leið til Íslands Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Fjórða hvert ungmenni talar sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína Ungliðahreyfing Viðreisnar ályktar gegn ákvörðun ríkisstjórnarinnar Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Hefur lagt tillögur á borðið en tjáir sig ekki um lögreglustjóra Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Áhyggjuefni hversu fáir treysta íslenskum fjölmiðlum Uppsagnir yfirvofandi á Húsavík Hnífi beitt í heimahúsi á Húsavík Frábiður sér að nördum sé líkt við Sósíalista Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Fyrrverandi þingmenn í nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Mannréttindadómstóllinn sýknar ríkið af kröfum mótmælenda Flestir urðu varir við „falsfréttir“ fyrir síðustu alþingiskosningar Margrét Hauksdóttir er látin Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Þorbjörg sögð bjóða Helga embætti vararíkislögreglustjóra Nauðlending á þjóðveginum Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Lækkandi fæðingartíðni ekki hundaflauta: „Ég bara hafna algjörlega forsendunum“ Hætt í VG og segir spillingu grassera í íslenskum stjórnmálum Ný forysta stefni í ranga átt „Einhver erfiðasti tími sem ég hef gengið í gegnum“ „Og ég treysti því að dómstólar snúi því við“ Sendir í leyfi fyrir að vinna ekki nógu mikið Sjá meira