Spenna á landamærum Tyrklands og Íraks Þórir Guðmundsson skrifar 13. október 2007 19:15
Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Tyrki í dag að láta ekki verða af fyrirhugaðri árás á kúrdíska skæruliða yfir landamærin við Írak. Þúsundir skærliða á vegum Verkamannaflokks Kúrdistans, eða PKK, hafast við í fjöllunum á landamærum Íraks og Tyrklands. Á síðustu dögum hafa þeir fellt fimmtán tyrkneska hermenn. Kúrdar eru tuttugu prósent íbúa Tyrklands en hafa átt mjög undir högg að sækja sem þjóðarbrot. Ein af hetjum Kúrda, ljóðskáldið Mehmed Uzun, var í dag borinn til grafar, en hann dó úr krabbameini. Hans vopn í sjálfstæðisbaráttunni var penninn, en nú beinist athygli tyrkneskra yfirvalda að þeim sem láta sér ekki nægja stílvopnið. Forseti Tyrklands er búinn að gefa hernum grænt ljós á að gera stórárás á skæruliðana inn fyrir landamæri Íraks. Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna varar við slíkri árás. En Bandaríkjamenn eru ekki í góðri aðstöðu að hafa áhrif á Tyrki, eftir að Bandaríkjaþing lýsti því yfir að morð á Armenum árið 1915 hefðu verið þjóðarmorð. Tyrkir eru æfareiðir og skoða nú refsiaðgerðir, svo sem að meina Bandaríkjaher aðgang að mikilvægum herflugvelli í Tyrklandi. Spennan á landamærunum hefur áhrif á olíuverð, sem fór yfir 84 dali á fatið fyrir helgi.
Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fleiri fréttir Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Sjá meira