Líklega ekki kosningar fyrr en eftir tvö ár 7. október 2007 18:50
Forsætisráðherra Breta liggur undir ámæli andstæðinga sinna fyrir að boða ekki til þingkosninga á þessu ári líkt og hann hafði gefið í skyn. Um þrír mánuðir eru síðan að Gordon Brown tók við embætti forsætisráðherra af Tony Blair. Fyrir fáeinum vikum birtust skoðanakannanir sem sýndu að Brown og flokkur hans Verkamannaflokkurinn nytu mikils stuðnings hefðu verulegt forskot á Íhaldsflokkinn. Stjórnmálaskýrendur töldu þá margir sterkan leik fyrir Brown að boða til kosninga hið fyrsta og gaf Brown sjálfur í skyn að það yrði jafnvel gert á þessu hausti. Síðast var kosið í Bretlandi í maí 2005. Venjan er sú að boðað er til kosninga í fyrsta lagi þegar þrjú ár eru liðin af kjörtímabili en í síðasta lagi þegar fimm ár eru liðin. Brown þarf því ekki að boða til kosninga fyrr en árið 2010. Hann gæti hins vegar ákveðið að reyna að styrkja stöðu flokksins og boða til kosninga þegar allt bendir að flokkurinn hafi mikinn meðbyr. Í gær sýndi breska ríkissjónvarpið BBC viðtal við forsætisráðherrann þar sem hann útilokaði kosningar á þessu ári og taldi jafnframt ólíklegt að boðað yrði til þeirra á því næsta. Brown sagðist enn eiga eftir að sýna þjóðinni hvað hann ætlar sér að gera og að hann vilji vera dæmdur af framtíðarsýn sinni en ekki hæfni sinni til að takast á við erfiðleika. Síðan Brown tók við í júní hafa mætt honum fjölmörg erfið mál svo sem flóð á vesturhluta Englands og gin og klaufaveiki Nýjustu kannanir sýna að ef boðað yrði til kosninga nú þá myndi Verkamannaflokkurinn jafnvel tapa meirihluta sínum í neðri deild breska þingsins. Andstæðingar Brown hafa gagnrýnt harðlega ákvörðun hans um að bíða með kosningar þar sem þeir sjá nú fram á að fá í fyrsta lagi tækifæri til að komast að eftir tvö ár.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira