Tvær íslenskar fjölskyldur hafa flúið elda í Kaliforníu Þórir Guðmundsson skrifar 23. október 2007 18:46
Hundruð þúsunda manna eru á flótta undan skógareldum í Kaliforníu, þeirra á meðal Íslendingar sem búa í San Diego sýslu, suður af Los Angeles. Heimili að minnsta kosti eitt þúsund fjölskyldna hafa þegar orðið eldhafinu að bráð. Fimmtán hundruð þjóðvarðliðar berjast nú gegn fimmtán eldum í San Diego sýslu við hlið slökkviliðs og lögreglu, sem notast við rúmlega þrjú hundruð slökkviliðsbíla, nítján sérútbúnar flugvélar og átta stórar þyrlur. Með ólíkindum þykir að aðeins einn maður skuli hafa látið lífið. Stefán Karl Stefánsson leikari var að hjálpa nágranna sínum að losa fugla úr dýragarðinum í San Diego þegar við náðum í hann í dag. Hann sagðist vera með íslenska fjölskyldu í gistingu hjá sér sem hefði þurft að rýma hús sitt og að hann hefði heyrt af annarri sem hefði flúið hús sitt í gærkvöldi. Fön-vindur eða hnúkaþeyr, sem heimamenn kalla Santa Ana vind og kemur frá Klettafjöllum inn yfir sléttuna sunnan við Los Angeles, magnar bálið. Eldhafið breiðist því stöðugt út og stöðugt berast boð til fleiri fjölskyldna um að yfirgefa heimili sín. Fyrir fjórum árum kviknuðu skógareldar á þessu sama svæði. Þá létust 22 og þrjú þúsund heimili brunnu til kaldra kola. Eldarnir nú eru taldir verri.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Fleiri fréttir Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Sjá meira