Hundruð þúsund flýja eldana í Kaliforníu 23. október 2007 12:13
Tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín í Kaliforníu vegna mikilla skógarelda, einkum í suðurhluta fylkisins. Að minnsta kosti þrettán skógareldar í sunnanverðu Kaliforníufylki hafa eyðilagt sjö hundruð heimili, valdið dauða eins manns og skaðað á fjórða tug manna. Eldarnir breiðast út með miklum hraða í kjöraðstæðum. Þarna er heitt og þurrt og hinn svokallaði Santa Ana vindur blæs í glæðurnar. Það er fön-vindur eða hnúkaþeyr sem kemur neðan úr Klettafjöllum og fýkur með miklum hraða yfir láglendið suður af Los Angeles, einkum á þessum tíma árs. Skæðasti skógareldurinn er í grennd við San Diego og hefur grandað fimm hundruð einbýlishúsum og eitt hundrað öðrum byggingum. Um tíu þúsund manns sem flúðu heimili sín í San Diego sýslu gista nú á leikvelli San Diego Chargers ruðningsliðsins. Meðal þeirra sem þurftu að flýja hús sín á San Diego svæðinu var Jóna Kristbjörg Valdez, maður hennar og þrjú börn. Í Fréttablaðinu kemur fram að þau hafi fengið boð um að rýma húsið og hafi tíu mínútum síðar verið komin í bíl sinn á leið til Los Angeles. Schwarzenegger fylkisstjóri Kaliforníu hefur farið um hamfarasvæðin til að skoða aðstæður og hughreysta fólk. Vonast er til að Santa Ana vindinn lægi í dag og þá verði auðveldara að ráða niðurlögum eldanna.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Trump tókst að fella Massie Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Fleiri fréttir „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Bíl ekið á hóp manna í Modena Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Sjá meira