Ferðamenn drukknuðu í tælenskum helli Þórir Guðmundsson skrifar 14. október 2007 18:16 MYND/AP
Sex evrópskir ferðamenn voru meðal átta manna sem létu lífið í Tælandi í dag þegar vatn flæddi skyndilega inn í helli sem þeir voru að skoða. Bresk kona komst lífs af. Björgunarmenn fögnuðu innilega þegar félagar þeirra leiddu breska konu út úr hellinum í morgun. Hún mun hafa komist nógu hátt upp í hellinum, upp fyrir yfirborð vatnsins sem skyndilega flæddi inn. Með henni í för voru fjórir Svisslendingar, breskur karlmaður, tíu ára þýskur drengur, tælenskur ræðari og tælenskur leiðsögumaður. Undanfarið hefur rignt ákaflega í Khao Sok þjóðgarðinum og héraðsstjórinn segir að skilti við hellinn hafi varað fólk við að fara inn í hann í rigningu. Fólkið fór samt inn í hellinn, sem nær fimm hundruð metra inn í bergið og liggur við foss í þjóðgarðinum. Nú er rigningatímabil í Tælandi og úrhelli sem safnast saman í jarðveginum getur fossað fram fyrirvaralítið með þeim afleiðingum að á verður skyndilega að stórfljóti. Fyrir evrópsku ferðamennina og tælenska aðstoðarmenn þeirra var engin undankomuleið - og kraftaverk má teljast að breska konan skuli hafa sloppið lifandi.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira