Tíska og hönnun

Sportlegur glæsifatnaður

Íþróttastíll í bland við fínlegan úr sumarlínunni fyrir 2007. Hér sést víð hvít skyrta með uppbrettar ermar og gulgrænt hárband úr fínu satínefni við.
Íþróttastíll í bland við fínlegan úr sumarlínunni fyrir 2007. Hér sést víð hvít skyrta með uppbrettar ermar og gulgrænt hárband úr fínu satínefni við.
Belgíski hönnuðurinn Dries Van Noten er snillingur í að blanda formlegum og fínum stíl við hinn hversdagslega. Í sumarlínu sinni fyrir 2007 kynnti hann eins konar sportklæðnað sem var þó ekki ætlaður til íþróttaiðkunar heldur var um að ræða íþróttafatnað úr einstaklega fínum og gerðarlegum efnum.

Fallegur parka-jakki úr satínefni við hvítar sportlegar buxur.
Hælaskórnir sem hann paraði við voru eins og háhælaðir íþróttaskór en í bland við þetta allt voru pallíettujakkar og töffaraleg förðun.

Þessu útliti er alls ekki erfitt að ná. Sportlegir parka-jakkar, víðar stuttbuxur, bómullarbolir og kannski jafnvel töffaralegir, marglitaðir pallíettujakkar og eitthvað röndótt er það eina sem þarf.

Dásamlega sætur röndóttur satínjakki og ljós töffaraleg sólgleraugu sem minna svolítið á Ray Ban Wayfarers.
Litirnir eru flestir í daufari kantinum. Grár, ljósbrúnn, hvítur og svartur en í bland eru sterkir litir eins og gulgrænn, dökkbleikur og blár. Til að fullkomna þetta þarf svo hvít eða ljós sólgleraugu með dökku gleri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×