Hafið á degi umhverfisins 25. apríl 2007 05:00 Dagur umhverfisins er öðru fremur til þess hugsaður að umræða um málefni umhverfisins sé sett í kastljós fjölmiðlanna. Við vinstri græn fögnum deginum og tökum þessari áskorun, þó okkur þyki sjálfsagt að málefni umhverfisins séu á dagskrá alla daga ársins. En flestar gjörðir okkar hafa áhrif á umhverfið á einhvern hátt. Það er eðlilegt að fiskveiðiþjóð í miðju Atlantshafinu leggi mikið upp úr því að vernda hafið umhverfis landið og sumt höfum við gert vel í þeim efnum en annað hefur setið á hakanum. VG leggur áherslu á að litið sé á verndun og nýtingu lífrænna auðlinda hafsins í sem heildstæðustu samhengi. Við leggjum áherslu á rannsóknir til að fá sem skýrasta mynd af sem flestum þáttum í vistkerfi sjávar og samspili þeirra. Og við leggjum áherslu á það sem við köllum sjálfbæra sjávarútvegsstefnu, sem tekur í senn mið af umhverfislegum, félagslegum og efnahagslegum þáttum með það að markmiði að varðveita náttúru og lífrænar auðlindir hafsins, treysta byggð og atvinnu sem víðast og skapa sem mest verðmæti af sjávarauðlindunum innanlands. En við leggjum líka mikið upp úr vernd þeirra svæða sem fóstra nytjastofna okkar og annað lífríki. Í því efni beinum við sjónum að hafinu sjálfu, ströndinni umhverfis landið og hafsbotninum. Í Grænni framtíð, stefnu VG um sjálfbæra þróun, setjum við fram markmið til langs tíma, en gerum jafnframt grein fyrir ákjósanlegum leiðum að þeim markmiðum. Þannig teljum við nauðsynlegt að við alla nýtingu sjávarauðlindarinnar sé gætt varúðarsjónarmiða og að nýtingin sé siðferðilega ábyrg. Til þess þurfa allar ákvarðanir um nýtingu að byggja á heildarsýn, bestu fáanlegu þekkingu og öflugum grunnrannsóknum. Á næstu fimm árum teljum við brýnt að efla hafrannsóknir með sérstakri áherslu á að fylgjast með samspili tegundanna og viðgangi staðbundinna stofna. Einnig þarf að efla möguleika rannsóknarstofnana á að skoða áhrif mismunandi veiðarfæra, bera saman árangur fiskverndaraðgerða, rannsaka áhrif ólíkra veiðarfæra á hafsbotninn og sinna fleiri slíkum rannsóknarverkefnum sem ekki hefur verið sinnt sem skyldi, m.a. vegna fjárskorts. Þá þarf að gefa gaum að alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi í því augnamiði að styrkja vísindalegan grundvöll fiskveiðistjórnunar og framleiðslu. Við Íslendingar erum bundin af alþjóðasamningum sem varða umgengni við lífríki og náttúruna. Þar má nefna Ríó-yfirlýsinguna frá 1992, CITES-samninginn frá 1973 um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu og Bernar-samninginn frá 1979 um vernd villtra dýra og plantna og búsvæða þeirra í Evrópu. Þessa samninga viljum við vinstri græn efna en teljum nokkuð skorta á að svo sé í dag. Við erum einnig aðilar að samstarfi Norðurlandaþjóðanna um sjálfbær Norðurlönd. Í samræmi við það þyrftum við að taka orkunotkun í sjávarútvegi sérstaklega til skoðunar í þeim tilgangi að stuðla að orkusparnaði og nýtingu vistvænna orkugjafa í sjávarútvegi. Rannsóknir gefa vísbendingar um að báta- og strandveiðiflotinn skili margföldu aflaverðmæti á hvert tonn af olíu miðað við það sem gerist í togaraútgerð. Nauðsynlegt að vinna markvisst að því að draga úr orkunotkun á aflaeiningu. Því miður er umræðan um umhverfismál stundum föst uppi á þurru landi. Á degi umhverfisins gefst okkur tækifæri til að breikka umræðuna svo hún nái út fyrir strandlengjuna og út á sjó. Það er næsta skref í umhverfismálunum því hafið er órjúfanlegur hluti af umhverfi okkar Íslendinga, enda búum við langflest nálægt hafinu. Vinstri græn hafa lagt sitt af mörkum í þeirri umræðu með umhverfisstefnunni Græn framtíð. Nú vantar okkur aðeins umboð kjósenda til að koma stefnunni í framkvæmd. Höfundur er alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar