Konungur belgískra strokufanga handtekinn í Hollandi 30. október 2007 23:13 Nordin Benallal í haldi belgísku lögreglunnar. MYND/AFP
Hinn ókrýndi konungur strokufanga í Belgíu, Nordin Benallal, var handtekinn í Hollandi í dag eftir misheppnað rán þar í landi. Benallal strauk úr fangelsi í Belgíu á sunnudaginn eftir að hann og félagar hans tóku tvo fangaverði í gíslingu. Flótti Benallal á sunnudaginn vakti mikla athygli í Belgíu. Félagar hans lentu þyrlu í fangelsisgarðinum og ætluðu síðan að fljúga með hann í burtu. Þegar þyrlan lenti hlupu fjölmargir fangar í átt að þyrlunni og ætluðu að fá að fljóta með. Þyrlan þoldi ekki þungan og brotlenti. Tveir slösuðust en þó ekki alvarlega. Benallal náði að taka tvo fangaverði í gíslingu og þannig komast út úr fangelsinu. Var þetta í fjórða skiptið sem hann strýkur úr fangelsi í Belgíu. Áður hafði hann náð að sleppa með því að hlaupa í burtu frá fangavörðum á meðan verið var að flytja hann á milli fangelsa. Þá klifraði hann í eitt skiptið yfir fangelsisvegg með því að nota kaðal og síðast gekk hann hreinlega út úr fangelsinu með því að setja á sig hárkollu og sólgleraugu. Benallal var á sínum tíma dæmdur í fangelsi fyrir vopnað rán og þjófnað. Hann var handtekinn í Haag í dag þar sem hann gerði misheppnaða tilraun til að ræna verslun.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira