Fannst á lífi eftir átta daga í bílflaki Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 28. september 2007 10:28 Lögreglumenn taka mál á slysstað þar sem Honda Element bíll konunnar fannst. MYND/AP
Kona sem saknað hafði verið í átta daga fannst á lífi í bíl á botni gils í Bandaríkjunum - á sama tíma og eiginmaður hennar var að taka lygapróf vegna hvarfsins. Lögregla fann bíl konunnar á botni gils við hraðbraut nálægt Seattle í Washington. Tanya Rider var á leið heim úr vinnu þegar hún fór út af veginum og hrapaði sjö metra niður gilið. Þegar lögreglumenn fylgdu leiðinni sem hún keyrði vanalega heim tóku þeir eftir skemmdum runna. Þeir höfðu kannað gsm merki úr síma konunnar og sáu loks bílinn á milli runna í botni gilsins. Tanya svaraði kalli lögreglumannanna en var afar máttfarin. Björgunarmenn þurftu að klippa þak bílsins af til að ná henni út. Á sama tíma var Tom eiginmaður hennar að setjast við lygamæli á lögreglustöð í Maple Valley svo lögregla gæti útilokað að hann ætti þátt í hvarfi hennar. Ástand konunnar er alvarlegt, hún er með nýrnabilun og legusár eftir að liggja kyrr í bílnum í rúma viku. Tom eiginmaður hennar segir hana berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsinu. Tom hafði boðið rúma eina og hálfa milljón í verðlaunafé til þeirra sem gætu gefið upplýsingar um hvar kona hans væri.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Erlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Erlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira