Loka fyrir internet í Mjanmar Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 28. september 2007 09:42 Blóðugir sandalar á götum Rangoon eftir mótmælin í gær. MYND/AFP
Herstjórnin í Mjanmar hefur lokað fyrir aðgang almennings að interneti til að forðast að myndbrot af blóðugum aðgerðum öryggissveita gegn mótmælendum berist um heiminn. Internet kaffihúsum í höfuðborginni Rangoon og öðrum borgum landsins hefur verið lokað. Bloggarar sem nota internetið til að fá meira en fréttir ritstýrðra fréttastöðva í landinu segjast vera í vandræðum með að koma efni á bloggin. Fréttaritari Sky segir að þeir sem kvarti til ríkisrekna internetfyrirtækisins fái þær skýringar að netið liggi niðri vegna viðhalds. Ástandið í Mjanmar mun vera örlítið betra í dag en síðustu daga. Mótmælendur reyna að safnast saman, en herstjórnin heldur áfram aðgerðum gegn þeim. Hún hefur lokað svæðum nálægt búdda pagóðum í höfuðborginni til að reyna að komast hjá mótmælunum sem hafa að mestu verið í kringum búddahofin. Götum og torgum hefur einnig verið lokað. Útgöngubann er nú í gildi frá klukkan 6 á kvöldin til sex á morgnana. Samkvæmt opinberum heimildum hafa að minnsta kosti níu manns hafa látið lífið í mótmælunum, þar af einn japanskur fréttaljósmyndari. Óttast er að tala látinna sé mun hærri. Lýðræðisöfl greindu frá því í gær að allt að hundrað manns hefðu látið lífið.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Sjá meira