Óttast var að ræningjarnir hefðu skilið eftir sprengju 7. mars 2006 20:53 MYND/AP
Lögreglan í Svíþjóð tók til þess ráðs í dag að rýma stóran hluta annars stærsta flugvallar Svíþjóðar eftir að grunsamlegur pakki fannst eftir vopnað rán á flugvellinum. Sænska lögreglan leitar nú að þremur mönnum sem komust undan eftir að hafa rænt peningum sem verið var að flytja úr flugvél SAS flugfélagsins í öryggisbíl. Ránið varð á Landvetter sem er alþjóðaflugvöllurinn í Gautaborg en þjófarnir óku á jeppa sínum í gegnum hlið við flugvöllinn. Þegar þeir óku á brott skildu þeir eftir torkennilegan pakka en óttast var í fyrstu að um sprengju væri að ræða. Farþegar voru enn um borð í flugvélinni þegar ránið varð. Margir sáu mest alla atburðarásina í gegnum glugga flugvélarinnar og greip nokkur skelfing um sig meðal þeirra þegar grímuklæddir menn nálguðust vélina. Hluti flugvallarins var strax rýmdur af ótta við að sprengja hefði verið skilin eftir. Þjófarnir dreifðu nöglum á göturnar þegar þeir óku burt en bíll þeirra fannst nokkra kílómetra frá flugvellinum mikið skemmdur eftir að kveikt hafði verið í honum. Talið er að ræningjarnir hafi þar skipt um bíl en sá bíll fannst nokkrum kílómetrum lengra ónýtur eftir að kveikt var í honum. Lögreglan leitar enn mannanna en ekkert hefur verið gefið út um hversu mikið fé þjófarnir höfðu á brott.
Erlent Fréttir Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Fleiri fréttir Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Sjá meira