Flugfreyjurnar í fótboltanum 21. júní 2006 17:00
Það er bara töluð spænska í kaffiteríu blaðamanna hér á vellinum í Frankfurt, stöku kollegi pantar sér gúllassúpu á portúgölsku og ég sá áðan hollenskan blaðamann í appelsínugulri treyju innanundir vestinu. Þótt það sé ekki mikið í húfi á þessum leik Argentínumanna og Hollendinga Þá er stoltið undir, líkt og ég sá í andlitum mexíkósku áhorfendanna sem töpuðu fyrir Portúgal rétt í þessu. Það eina sem skiptir máli í riðlakeppninni er í rauninni að komast áfram. Raunar er líka mikið atriði á móti hverjum liðin lenda en samt ekki. í sextán liða úrslitum er bara einn einasti leikur, tveir möguleikar: áfram eða rakleitt heim. Mér finnst hollensku áhangendurnir sem hafa betrekkt miðbæ Frankfurt í allan dag ekki vera sérlega bjartsýnir, búast varla við sigri og eru þess albúnir að mæta Portúgal í næsta leik. Þetta gæti engu að síður orðið þægileg kvöldskemmtun, alveg eins og leikur Englendinga og Svía í gær. Mér fannst Englendingar eiga skilið að vinna leikinn í fyrri hálfleik, Svíarnir í þeim síðari. Og þess vegna var jafntefli fyllilega sanngjarnt og það sem meira er, ég fékk martröð í nótt; Englendingar vinna HM ! Kannski ósanngjarnt að segja martröð eða frekar óþægilegur draumur. Ég er sammála þeim sem ég hef talað við sem vilja að besta fótboltaliðið vinni á HM. Þá er mér sama hvort þeir heita Spánverjar, Þjóðverjar, Argentínumenn eða eitthvað annað. Það er auðvitað blessun að Grikkirnir eru ekki með. Þá er sá möguleiki á leiðindum frá. En hér við völlinn í Frankfurt skín gleði úr hverju andliti. Miðaldra prentari í appelsínugulum búningi er að drekka kók og troða í sig heimagerðri Frankfurtarpylsu. Það er lykt af nýslegnu grasi og svitalykt í loftinu. Betra er að vera á vellinum frekar en að troðast kurteislega á FIFA jet-svæðinu innan um konur í drögtum og karlmenn með bindi og mikinn rakspíra, sem ég sá í gær á vellinum í Köln. Þegar vallarverðirnir eru klæddir eins og flugfreyjur þá er þetta hætt að snúast um fótbolta.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik Sjá meira