Biður stuðningsmenn Hisbollah að vera reiðubúna til mótmæla 20. nóvember 2006 13:00 Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah, nýtur gríðarlegra vinsælda. MYND/AP
Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah, sagði í dag stuðningsmönnum að vera reiðubúnir til þess að mæta í friðsamleg mótmæli á götum úti til þess að krefjast nýrrar ríkisstjórnar í stað núverandi ríkisstjórnar, sem hann og stjórnmálamenn úr fleiri fylkingum segja að samræmist ekki stjórnarskrá. Þetta kemur fram í líbanska blaðinu Daily Star."Við í stjórnarandstöðunni verðum öll að vera reiðubúin, ekki síst andlega, til að fara út á göturnar. Við gætum kallað eftir ykkur með 24 tíma fyrirvara, eða 12 stunda fyrirvara, eða hvenær sem er, fyrirvaralaust," sagði hann í sjónvarpsávarpi sem sýnt var á Al-Manar sjónvarpsstöðinni, sem er áróðurssjónvarpsstöð Hisbollah.Nasrallah sagðist þó ekki myndu kalla til mótmæla án þess að ráðfæra sig við stjórnmálafylkingar sem styðja Hisbollah.Hisbollah, og fleiri stjórnarandstöðuflokkar, segja ríkisstjórnina ólögmæta og óstarfhæfa eftir að allir ráðherrar sjíamúslima auk eins kristins ráðherra, sögðu sig úr stjórninni um síðustu helgi. Stjórnarskrá Líbanons kveður sérstaklega á um skiptingu valds á milli mismunandi trúarhópa, þannig skulu allir hópar eiga fulltrúa á þinginu, sem og í ríkisstjórn. Með því að segja sig úr ríkisstjórninni með samstilltu átaki, geta ráðherrar sjíamúslima því lamað ríkisstjórnina.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Fleiri fréttir Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Sjá meira