Miklir skipsskaðar í sjóorrustum á Sri Lanka 10. nóvember 2006 13:47 Hermaður úr röðum stjórnarhersins. MYND/AP
Stjórnarherinn á Srí Lanka sökkti í morgun tveimur skipum tamíla-tígra sem sögð voru hlaðin sprengiefnum. Þá var háttsettur stjórnmálamaður úr röðum tamíla skotinn til bana í morgun í höfuðborginni Colombo. Vopnahléið á Srí Lanka hefur staðið völtum fótum undanfarna mánuði og síðustu daga hefur enn sigið á ógæfuhliðina. Sjóorrustan í morgun átti sér stað fyrir utan Trincomalee á austanverðri eyjunni. Talsmenn hersins segja að tveimur skipum tamíla, drekkhlöðnum sprengiefnum, hafi verið sökkt en þau hafi átt að nota til sjálfsmorðsárásar á farþegaferju með um 300 manns innanborðs. Í gær sukku 24 skip í miklum sjóorrustum norður af Jaffna-skaga. 23 hermenn týndu þar lífi en ekki er vitað um mannfall á meðal tamíla. Þá var þingmaður úr röðum Þjóðernisfylkingar tamíla skotinn til bana í höfuðborginni Colombo í morgun. Rajapakse forseti hefur þegar fordæmt morðið og sagt það framið til að hella olíu á ófriðareldinn. Sú átakahrina sem staðið hefur yfir undanfarna tvo sólarhringa kemur í kjölfar stórskotaliðsárásar hersins á flóttamannabúðir tamíla á miðvikudaginn. Talið er að í það minnsta 60 saklausir borgarar hafi beðið þar bana, þorri þeirra konur, börn og gamalmenni, og 150 særst. Árásin hefur hvarvetna verið fordæmd, meðal annars af Sameinuðu þjóðunum og mannréttindasamtökunum Amnesty International.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Sjá meira