Fótbolti

Miðjumenn Brasilíu hrósa ensku miðjunni

Byrjunarlið Brasilíu í leik þeirra gegn Venezuela í oktober 2005.
Byrjunarlið Brasilíu í leik þeirra gegn Venezuela í oktober 2005. MYND/AP

Brasilíumennirnir Kaka og Emerson gáfu það út eftir fyrsta leik Englendinga í Þýskalandi að þeir teldu liðið hafa eina bestu miðju á að skipa í mótinu.

Í þessu viðtali við dagblaðið News of the World sögðu þeir að með þessa hæfileikaríku miðjumenn gæti England farið langt í mótinu.

Brasilía gæti mætt Englandi í 8 liða úrslitum og þá væri það áhyggjuefni að mæta mönnum eins og Steven Gerrard David Beckham og Frank Lampard. Svo má auðvitað ekki gleyma mögulega leikmanni mótsins Wayne Rooney sem er ótrúlega hæfileikaríku leikmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×