Erlent

Flóð í Grikklandi

MYND/AP

Allt er á floti í austurhluta Grikklands þar sem ár hafa flætt yfir bakka sína og kaffært ræktarland og jafnvel hús. Mikið hefur snjóað og rignt á svæðinu síðustu daga og hafa flóðgarðar brostið. Óttast er að flóðin nú verði þau verstu í fimmtán ár.

Her- og björgunarmenn hafa rýmt borgir og bæi á svæðinu og íbúar búa sig undir það versta. Búlgarar hafa einnig rýmt borgir nálægt landamærum sínum að þessum hluta Grikklands og Tyrkir, sem einnig eru næstu nágrannar Grikkja þarna óttast það versta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×