Palestínumenn hóta að ræna Evrópubúum 2. febrúar 2006 21:56 Liðsmenn Al Aqsa-herdeildarinnar. MYND/AP
Erlendir sendifulltrúar og blaðamenn hafa margir hverjir yfirgefið landsvæði Palestínumanna í dag. Grímuklæddir palestínskir byssumenn hótuðu því í kvöld að ræna útlendingum vegna skopmynda af Múhameð spámanni sem birtar hafa verið í evrópskum dagblöðu. Þá hafa Mubarak, Egyptalandsforseti, og Ahmadinejad, forseti Írans, bæst í hóp þeirra sem gagnrýna myndbirtinguna. Palestínskir byssumenn á Vesturbakkanum hafa leitað útlendinga í hótelum og íbúðarhúsum um tíma umkringdu herskáir Palestínumenn sendiskriftsofu Evrópusambandsins á Gasa í dag. Skotið var á sendiskrifstofu Dana í Ramallah á Vesturbakkanum í dag en hún var þá mannlaus. Þá rændu palestínskir byssumenn Þjóðverja í Nablus á Vesturbakkanum í kvöld. Sá býr þar í borg og kennir ensku. Hann var látinn laus skömmu síðar og sagði að mennirnir hefðu haft sig á brott og haldið sér án þess að gera nokkrar kröfur. Nokkur síðar hafi þeir svo skipað honum að setjast í leigubíl sem þeir sögðu að myndi flytja hann á næstu lögreglustöð. Fyrr í kvöld hótuðu liðsmenn al Aqsa-herdeildarinnar því að dönskum, frönskum og norsku þegnum yðri rænt ef þeir hefðu sig ekki á brott frá Nablus innan þriggja sólahringa. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, og Per Stig Möller, utanríkisráðherra, boðuðu í dag sendifulltrúa þeirra arabaríkja, sem enn eru í landinu, til fundar við sig á morgun. Á fundinum verða skopmyndirnar, sem Jótlandspósturinn birti, ræddar og ætla ráðherrarnir að kynna afstöðu danskra stjórnvalda og aðgerðir þeirra í málinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Fleiri fréttir Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Sjá meira