Af ástum og örlögum 18. nóvember 2006 08:00
Félag um átjándu aldar fræði gengst fyrir málþingi í fyrirlestra-sal Þjóðarbókhlöðu í dag og hefst það kl. 13 og lýkur um kaffileytið. Þar verða flutt sex erindi fræðimanna um ýmislegt er lýtur að sögulegum minnum frá einkalífi þess tíma sem félagið einbeitir sér einkum að. Kvonbænir og kaupöl heitir erindi Árna Björnssonar, dr. phil. Ísland í ljósi vestur-evrópsks hjúskaparmynsturs er efni Ólafar Garðarsdóttur, sagnfræðings. Djákninn á Reynisstað og kona klausturhaldarans - Af ástum Jóns Steingrímssonar og Þórunnar Hannesdóttur Scheving er efni Torfa K. Stefánssonar Hjaltalín, guðfræðings. Raunir biskupsdóttur - Þættir úr lífssögu Helgu Steinsdóttur er efni Sigurðar Péturssonar. Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttur - sjálfsævisaga baráttukonu eða kímnisaga af flóni? spyr Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur. Skóp ástin örlög Þuríðar bóndadóttur? er viðfangsefni Þórunnar Guðmundsdóttur sagnfræðings.Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur. Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi. Ágrip erinda liggja frammi á málþinginu. Þau verða síðar aðgengileg á heimasíðu félagsins: www.akademia.is/18.oldin.
Menning Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Lífið Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira