DNA-próf til að sanna skyldleika 24. janúar 2005 00:01
Hælisleitendum í Danmörku verður gert skylt að undirgangast DNA-próf til að sanna skyldleika við börn sem þeir flytja með sér, verði hugmynd danska þjóðarflokksins að veruleika. Samkvæmt stikkprufum sem eru gerðar í dag eru börn flutt til landsins með öðrum en líffræðilegum foreldrum sínum í þriðja hvert skipti. „Ég mátti ekki segja að þau voru ekki raunverulegir foreldrar mínir,“ sagði átta ára drengur í viðtali við danska ríkissjónvarpið í gærkvöldi. Hann er eitt af hundruðum barna sem flytjast til Danmerkur með „fölskum foreldrum“, ef svo má segja. Raunverulegu foreldrarnir eru með þessu að reyna að tryggja börnum sínum betri framtíð í vestrænu samfélagi. Forráðamenn barnanna í Danmörku fá barnabætur og í sumum tilfellum er hluti þeirra bóta sendur til raunverulegu foreldranna í heimalandinu. Danski þjóðarflokkurinn, sem styður meirihlutasamstarf Venstre og Íhaldsflokksins, segir börnin vera notuð sem peningavélar til að ná peningum úr danska kerfinu. Varaformaður flokksins, Peter Skaarup, krefst þess í fréttatilkynningu að DNA-próf verði skylda svo hægt sé að sanna skyldleika foreldra og barna þegar fólk leitar hælis í Danmörku. Höfuð stjórnarandstöðunnar, Sósíaldemókratarnir, styðja hugmyndina en ráðherra innflytjendamála, Bertel Haarder úr röðum Venstre, segir óþarfi að fastbinda slík próf á erfðaefni. Þau próf séu dýr og nóg sé að halda áfram að taka stikkprufur. Samkvæmt þeim eru börn ekki blóðtengd forráðamönnum sem flytja með þeim til Danmerkur í um það bil þriðja hvert skipti. Umræðan um innflytjendamál og hælisleitendur er eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni í Danmörku, en kosið verður til þings eftir tvær vikur.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira