Eystrasaltsríki hunsuðu hátíðahöld 9. maí 2005 00:01
Endaloka heimsstyrjaldarinnar síðari var í dag minnst í Moskvu með hersýningu og hátíðarhöldum. Ekki eru allir á eitt sáttir og Eystrasaltslöndin hunsuðu hátíðarhöldin þar sem endalok Hitlers og heimstyrjaldarinnar marka líka upphafið að hernámi Sovétríkjanna.. Langflestir eða 27 milljónir af þeim 40 milljónum sem létu lífið í heimsstyrjöldinni síðari voru Sovétmenn. Þeirra var minnst í morgun með hersýningu á Rauða torginu í Moskvu að viðstöddum um 50 þjóðarleiðtogum víðs vegar að úr heiminum, þar á meðal Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sem að undanförnu hefur að nokkru fallið úr náðinni hjá Vesturlöndum, sérstaklega vegna Tsjetsjeníu og aukinna einræðistilburða sinna, notaði tækifærið síðdegis og sat á fundum með hverjum forsetanum og forsætisráðherranum á fætur öðrum og ræddi mál eins og baráttuna gegn hryðjuverkum, Norður-Kóreu og Miðausturlönd. Það vakti athygli að vel fór á með Pútín og Bush Bandaríkjaforseta á hátíðarhöldunum en vaxandi væringar hafa verið á milli landanna tveggja. Bush Bandaríkjaforseti fór nú síðdegis í opinbera heimsókn til Georgíu en það hefur að öllum líkindum ekki vakið mikla hrifningu Pútíns sem stendur í miklum deildum við yfirvöld þar eftir stjórnarskiptin, sérstaklega vegna þess að Georgíumenn vilja loka tveimur rússneskum herstöðvum. Þann skugga bar líka á að stjórnvöld í Eistlandi og Litháen mættu ekki á hátíðarhöldin í Moskvu vegna þess að það var einmitt við lok heimsstyrjaldarinnar síðari sem Sovétmenn hernámu Eystrasaltslöndin. Þeir eru því nokkrir sem spyrja, hvort við þessi hátíðarhöld á Rauða torginu í dag hafi átt að fagna endalokum Hitlers eða upphafinu að 40 ára yfirráðum Sovétríkjanna í Austur-Evrópu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Erlent Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli Erlent Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Innlent Fleiri fréttir Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Sjá meira