Þungt haldinn af hermannaveiki 25. maí 2005 00:01
Miðaldra Íslendingur liggur þungt haldinn á Landspítalanum með hermannaveiki. Maðurinn var á ferðalagi í Róm með hópi Íslendinga á vegum ferðaskrifstofunnar Heimsferða en hópurinn kom heim í síðustu viku. Einkenna varð vart á meðan ferðinni stóð og er talið líklegt að hann hafi smitast á hóteli í Róm, en það er þó ekki víst. Þegar heim kom var maðurinn svo veikur að hann fór á sjúkrahús. Hann liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Síðdegis sögðu læknar að líðan hans hefði batnað örlítið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hermannaveiki greinist hér á landi. Á ári hverju greinast reyndar nokkur tilfelli og hermannaveiki var landlæg á Landspítalanum fyrir allnokkrum árum. En hvaða veiki er þetta? Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir þetta lungnabólgu af völdum sýkla sem sé sérstaklega áberandi hjá eldra fólki og þeim sem séu veikir fyrir. Hann segir ekki ástæðu til þess að óttast bakteríuna: hún sé til alls staðar. Það sem gerst hafi í Noregi og víðar sé að bakterían hefur vaxið í vatni sem liggur í kyrrstöðu og er notað til að kæla loftræsikerfi í stórum byggingum, t.a.m. hótelum og verslunum. Einnig geti veiran komið upp í gosbrunnum. Fjöldi farþega hefur haft samband við Heimsferðir í dag og hafa forsvarsmenn ferðaskrifstofunnar reynt að svara fyrirspurnum þeirra. Ekki þykir þó á þessu stigi ástæða til að óttast frekara smit, hafi það átt upptök sín á hótelinu í Róm, því að einkenni ættu þegar að hafa gert vart við sig miðað við þann tíma sem liðinn er. Fullhraust fólk sem kemst í snertingu við hermannaveiki veikist ekki endilega heldur byggir upp ónæmi og segir Haraldur rannsóknir á ónæmi sýna að hermannaveiki sé í umhverfi okkar. Engu að síður er hart brugðist við fregnum af hermannaveiki. Yfirvöld hér taka saman upplýsingar um ferðir þeirra sem sýkjast og koma þeim til samevrópsks gagnabanka. Í kjölfarið er gripið til aðgerða eftir því sem rétt þykir hverju sinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira