Erlent

Kvartað undan ástarbríma

Íbúum fjölbýlishúss í Borlänge í norðvesturhluta Svíþjóðar varð ekki að ósk sinni þegar leigusali þeirra neitaði að flytja út hávært par sem býr í húsinu. Nágrannarnir kvörtuðu sáran undan því að ástarleikjum þeirra fylgdi svo mikill hávaði að það truflaði þá í erli dagsins. Leigusalinn sagðist ekkert geta gert svo lengi sem parið iðkaði ástarleiki sína á daginn þar sem ekkert bannaði hávaða sem bærist milli íbúða á daginn, öðruvísi væri farið ef fólkið iðkaði ástarleikina, með tilheyrandi hávaða, á kvöldin eða að næturlagi, það væri bannað með lögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×