Bush en kokhraustur 13. janúar 2005 00:01
Eftir að hafa lagt milljarða króna í leit að gereyðingarvopnum í Írak tilkynnti bandaríska ríkisstjórnin á miðvikudaginn að leitinni hefði verið hætt. Þar með er ljóst að fullyrðingar George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, um gríðarlega vopnaeign Íraka áttu ekki við rök að styðjast. Meint gereyðingarvopnaeign Íraka var meginrök Bush fyrir innrásinni í Írak. Í sjónvarpsviðtali við fréttakonuna Barböru Walters sem tekið var upp á miðvikudaginn en sýnt verður á ABC-sjónvarpsstöðinni í kvöld varði Bush ákvörðun sína. "Líkt og margir aðrir Bandaríkjamenn og fólk víðs vegar um heiminn hafði ég það á tilfinningunni að við myndum finna gereyðingarvopn," sagði Bush. "Við verðum að komast að því hvað fór úrskeiðis þegar verið var að safna leynilegum gögnum. Saddam var hættulegur og heimurinn er öruggari nú þegar hann er ekki við völd." Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata á bandaríska þinginu, sagði að Bush þyrfti nú að útskýra það almennilega fyrir fólki hvers vegna hann hefði haft svo rangt fyrir sér í allan þennan tíma. Allt að 1.500 bandarískir hermenn og starfsmenn leyniþjónustunnar hafa síðustu tvö ár leitað að gereyðingarvopnum um allt Írak. Helst hefur verið leitað í verksmiðjum, rannsóknarstofum og á herstöðvum íraska hersins. Bush hefur þegar þakkað Charles Duelfer, yfirmanni bandarísku vopnaleitarinnar, fyrir hans störf. Duelfer mun skila lokaskýrslu um málið í næsta mánuði. Ekki er búist við því að hún muni bæta miklu við bráðabirgðaskýrsluna sem kynnt var síðasta haust, en í henni stóð að engin vopn hefðu fundist.
Erlent Fréttir Mest lesið Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira