Erlent

Vill uppfylla öryggisskilmála

Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, segist staðráðinn í að standa við þau ákvæði vegvísis fjórveldanna til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs sem kveða á um að vígahreyfingar Palestínumanna afvopnist. Hann neitar þó beiðnum Ísraela um uppgjör við herskáar hreyfingar og segist ætla að semja við þær. Ekkert hefur gengið að hrinda vegvísi fjórveldanna; Bandaríkjanna, Evrópusambandsins, Rússlands og Sameinuðu þjóðanna, í framkvæmd síðasta eitt og hálft árið. Abbas sagðist vona að það tækist og sjálfur væri hann staðráðinn í að gera sitt til þess að svo mætti vera. "Eins og þið vitið, byrjar vegvísirinn með öryggisskuldbindingum og tekur að lokum á endanlegri stöðu landamæra og Jerúsalem. Við erum reiðubúnir að uppfylla okkar skuldbindingar. Við vonum að Ísraelar séu það líka," sagði Abbas. "Hamas hefur ekki í hyggju að útrýma Ísrael," sagði Hassan Yousef, leiðtogi Hamas á Vesturbakkanum, og breytti þannig út af stefnu Hamas hingað til. Hann sagði koma til greina að taka árásir á Ísraela til endurskoðunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×