Erlent

Myrti ófríska eiginkonu sína

Norskur karlmaður hefur verið handtekinn fyrir morðið á ófrískri eiginkonu sinni og ófæddu barni sem hún hafði borið undir belti í nær níu mánuði. Maðurinn gaf sig sjálfur fram við lögregluna í Stafangri og tilkynnti um verknaðinn, að því er fram kemur á vef blaðsins Aftenposten. Þar segir að konan hafi fundist helsærð í íbúð þeirra skömmu síðar. Hún var flutt á Háskólasjúkrahúsið í Stafangri en starfsfólki þess tókst hvorki að bjarga lífi hennar né barnsins. Maðurinn verður ákærður fyrir tvöfalt morð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×