Erlent

Eitruðu fyrir barni með salti

Bresk hjón hafa verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar fyrir að verða þriggja ára dreng að bana. Þau íhuguðu að ættleiða drenginn en drápu hann þess í stað með því að eitra fyrir honum með salti og veita honum banvænan höfuðáverka. Hjónin fengu drenginn til sín í þrettán vikur til reynslu. Eftir fimm vikur var hann fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fundist í dauðadái á heimili sínu, þá höfðu hjónin neytt þrjár til fjórar teskeiðar af salti ofan í hann til að refsa honum. Hjónin voru ósátt við að hann uppfyllti ekki vonir þeirra um þægilegt fjölskyldulíf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×