Stjórnvöld hamla hjálparsamstarfi 13. janúar 2005 00:01
Sú krafa indónesískra stjórnvalda að hermenn fylgi hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðum í Aceh-héraði getur orðið til þess að grafa undan hjálparstarfi í héraðinu, sögðu talsmenn hjálparsamtaka í gær. Þeir segja að þetta geti hvort tveggja orðið til að seinka ferðum hjálparstarfsmanna og einnig til að tengja hjálparstarfsmenn stjórnarhernum í hugum heimamanna í héraðinu þar sem borgarastríð hefur verið háð í þrjá áratugi. Indónesísk stjórnvöld segja nauðsynlegt að hermenn fylgi hjálparstarfsmönnum vegna hættu á árásum uppreisnarmanna. Uppreisnarmenn lýstu hins vegar yfir vopnahléi í kjölfar flóðbylgjunnar og hafa ítrekað það boð sitt nokkrum sinnum síðan þá. Hjálparstarfsmenn segja nauðsynlegt að bregðast fljótt við og eitra fyrir moskítóflugum sem geti dreift malaríu, verði það ekki gert fljótlega segja þeir hættu á að sjúkdómurinn kunni að leggja tugi þúsunda að velli á komandi mánuðum. Hjálparstarfsmenn á Andamaneyjunum indversku kvarta undan því að yfirvöld komi í veg fyrir að þeir geti veitt þá hjálp sem þörf er á. Talsmenn indverskra og erlendra hjálparsamtaka segja yfirvöld hafa gert þeim erfitt fyrir að ferðast til eyjanna. Í gær kvartaði svo Basudev Dass, einn forystumanna Indverska rauða krossins, undan því að stjórnvöld hefðu stolið hjálpargögnum frá samtökunum. "Þeir vilja taka öll hjálpargögn og dreifa þeim. Við erum ákveðin í því að við ætlum að fara og dreifa þeim til þeirra sem þurfa nauðsynlega á þeim að halda.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira