Reynt að hrinda af stað styrjöld 13. janúar 2005 00:01
Hryðjuverkamenn eru farnir að myrða leiðtoga sjíta í Írak og reyna að hrinda af stað borgarastyrjöld fyrir kosningarnar sem haldnar verða um næstu mánaðamót. Tveir af aðstoðarmönnum sjítaleiðtogans Alis Al Sistanis voru myrtir í dag. Sonur annars hinna myrtu og fjórir lífverðir féllu einnig í árásunum. Ajatolla Ali Al Sistani er æðstiklerkur sjíta og nánast dýrkaður af þeim. Hann hefur hvatt fylgismenn sína til þess að taka þátt í kosningunum sem haldnar verða þann þrítugasta þessa mánaðar. Sjítar eru 60 prósent íröksku þjóðarinnar. Þeir voru hins vegar grimmilega kúgaðir meðan Saddam Hussein var við völd, en súnnítar réðu þá lögum og lofum í landinu. Nú óttast súnnítar að sjítar vinni stórsigur í kosningunum og því hafa þeir hrint af stað blóðugri herferð gegn leiðtogum þeirra til þess að reyna að egna þá til átaka. Hingað til hafa sjítar haldið aftur af sér og fulltrúi þeirra í bráðabirgðastjórninni sagði í dag að þeir ætluðu ekki að færa óvinum sínum borgarastyrjöld á silfurfati. Búast má við að súnnítar muni herða sókn sína eftir því sem nær dregur kosningum. Bæði bráðabirgðastjórnin og Bandaríkjamenn hafa viðurkennt að sumir staðir í Írak séu svo ótryggir að þar verði ekki hægt að halda kosningar 30. janúar. Þeir eru hins vegar mjög ákveðnir í að kosningarnar fari fram á þessum degi þótt það geti tekið einhvern tíma að ljúka þeim um landið allt.
Erlent Fréttir Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fleiri fréttir Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming Sjá meira