Atvinnulíf þurrkaðist út 13. janúar 2005 00:01
Flóðbylgjan sem skall á löndum við Indlandshaf annan dag jóla þurrkaði út allt atvinnulíf í strandhéruðunum á Srí Lanka og víða hefur engin hjálp borist. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, hefur verið á ferðalagi um þessi svæði undanfarna daga. Ingólfur segir suðvesturströnd Srí Lanka nánast í rúst. Strax fyrir utan höfuðborgina Kólombó megi sjá eyðileggingu sem fari stigvaxandi eftir því sem nær dragi suðurodda eyjarinnar. Við ströndina hafi áður verið blómleg byggð, ferðamannabæir og fiskiþorp, en ekkert sé eftir nema stöku húsgrunnar og endalausar rústir. Aldan hafi á köflum farið mörg hundruð metra upp á land og ekki skilið neitt eftir. Múrsteinar hafi nánast molnað og steyptir veggir sundrast í frumeindir. Ingólfur segir að það þurfi lítið ímyndunarafl til að geta sér til um örlög þeirra sem urðu fyrir öldunni og lyktin segi víða sína sögu. Eftir standi fólk sem misst hafi allt, fjölskylduna, heimilið og lífsviðurværið. Í Galle, þar sem Ingólfur dvelur, segja hjálparstarfsmenn sömu sögu og annars staðar. Skortur er á lyfjum, einkum sýkllayfjum og sterkum verkjalyfjum, en aðalsjúkrahúsið á staðnum skemmdist mikið í flóðunum og á öðru sjúkrahúsi í grenndinni kláraðist lyfjaskammtur fyrir mánuðinn á sólarhring. Við þetta bætist lost sem margir hafa orðið fyrir, ekki síst börnin sem hræðast nú sjóinn. Ingólfur segir að það eigi eftir að taka drjúgan tíma að hlúa að sárum í sálum fólksins á svæðinu.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira