Svikulir teppahreinsarar í Osló 13. janúar 2005 00:01
Eldri borgarar í Osló hafa verið varaðir við tveim svindlurum sem hafa haft stórfé af gömlu fólki fyrir teppahreinsanir. Síðastliðinn þriðjudag hleypti 82 ára gömul kona tveim mönnum inn í íbúð sína, en þeir höfðu bankað upp hjá henni og boðist til þess að hreinsa teppin hjá henni. Mennirnir voru afskaplega þægilegir í framkomu og buðu af sér góðan þokka. Gamla konan settist fram í eldhús og fékk sér kaffibolla meðan teppin voru hreinsuð. Það tók um eina klukkustund og þá afhentu teppahreinsararnir henni reikning upp á 21 þúsund norskar krónur, eða 212 þúsund íslenskar. Gamla konan greiddi það sem upp var sett. Hún lét mennina hafa tvö þúsund norskar krónur sem hún átti í reiðufé og svo ávísun upp á 19 þúsund norskar krónur. Þau kvöddust svo með virktum. Til allrar hamingju hringdi sonur konunnar til hennar um kvöldið til þess að gá hvernig hún hefði það. Hún sagði honum þá meðal annars að hún hefði látið hreinsa teppin hjá sér. Syninum var nokkuð brugðið við að heyra hvað hreinsunin kostaði og gerði þegar ráðstafanir til þess að stöðva ávísunina sem móðir hans hafði skrifað. Jafnframt var send út viðvörun um svindlarana sem munu hafa komið víðar við áður en upp komst um athæfi þeirra. Lögreglan leitar nú þessara dýru hreingerningarmanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira