Erlent

Missti símasamband í óverðrinu

Íslensku konunnar, Lilju Aðalbjörgu Ólafsdóttur Hansch, er enn leitað í Mississippi. Systir hennar, Helga Hrönn Ólafsdóttir, heyrði síðast frá henni þegar óveðrið barði á húsinu hennar í Gulfport, sem er mitt á milli Biloxi og St. Louis á suðurströnd Bandaríkjanna. Þá fosslak regnvatn í gegnum þakið á einnar hæðar sterkbyggðu húsi hennar. Helga Hrönn segir að Lilja hafi ítrekað þurft að halda útidyrahurðinni aftur. Hún hafi óttast að húsið spryngi upp stæði hurðin opin. Tré í garðinum hafi öll verið fokin burt. Lilja er fertug og gift bandarískum manni sem er við störf í Japan. "Lilja vissi ekki hvar gatið á þakinu var en vatn lak út um eldhúsinnréttinguna hjá henni og út um ofninn," segir Helga. Hún segir að óveðrið hafi skollið á borginni Gulfport klukkan sex um morguninn og þær systur hafi talað saman til klukkan tíu: "Ég reyndi að vera líflína hennar í gegnum símann." Systkini Lilju segja grátlegt að hún hafi ekki komist burt frá Gulfport. Hún hafi ekki treyst sér til að aka undir álagi og því fengið far hjá nágrönnunum. "En sonur nágrannanna var að koma úr mikilli aðgerð í Japan. Hann er tengdur vél sem gengur fyrir rafmagni. Hjónin sáu fram á að þau kæmust aldrei í tæka tíð til að tengja vél sonarins þegar þau sáu bílaraðirnar úr borginni. Þau sneru því við. Lilja komst því ekki lengra," segir Helga. Bróðir Lilju, Jakob Ólafsson, segir að hann hugi að því að fara til Bandaríkjanna og fá úr því skorið hvar systir hans sé. "Ég er að leita eftir upplýsingum um hvernig ég get komist til Gulfport því mér skilst að þarna úti ríki skálmöld. Ég vinn hjá Landhelgisgæslunni og svo vel vill til að héðan hafa menn farið í sjómælingaskóla til borgarinnar. Ég reyni að nýta mér þær boðleiðir og þann mannskap sem þeir þekkja en flestir mannanna hafa flúið svæðið." Fjölskyldan hefur haft samband við þá sem hún telur geta hjálpað sér við leitina. Þar á meðal eru utanríkisráðuneytið, Rauði krossinn og bandaríska alríkislögreglan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×