Allan er alltaf velkominn til FH 29. ágúst 2005 00:01
Framherjinn Allan Borgvardt, sem verið hefur einn besti leikmaður Landsbankadeildarinnar í sumar, fór til Noregs í gær og hefur undirritað samning við norska liðið Viking um að leika með því fram á vetur. Mikill sjónarsviptir verður af þessum frábæra leikmanni í úrvalsdeildinni hér heima, en hann hefur verið framúrskarandi á þeim tíma sem hann hefur spilað með Hafnfirðingum og á stóran þátt í að liðið hefur orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð. "Þetta gekk nokkuð fljótt fyrir sig og nú er ljóst að Allan er orðinn leikmaður Viking," sagði Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH í gær, þegar hann var spurður hvernig viðskiptin hefðu komið til. "Það hafa nokkur lið verið að skoða hann í sumar, en Viking var nú reyndar ekki eitt af þeim. Þeir hinsvegar hafa heyrt nóg um hann til að ákveða að gera við hann samning fram á haustið og eftir það verður bara að koma í ljós hvað verður með hann. Allan er bara 25 ára gamall og draumur hans er auðvitað að komast að hjá liði í fullri atvinnumennsku einhversstaðar. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni og vonum að rætist úr þessu hjá honum," sagði Pétur, en bætti við að ekki væri víst að við hefðum séð okkar síðasta af Dananum knáa. "Ef hlutirnir ganga ekki upp hjá honum þarna úti, getur meira en verið að hann komi bara og spili með FH aftur. Hann verður alltaf velkominn hingað og mun aldrei leika með öðru liði en FH hér á Íslandi," sagði Pétur og sagði að Hafnfirðingar myndu sakna Borgvardt mikið, þar sem hann sé ekki aðeins frábær knattspyrnumaður, heldur einnig drengur góður.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanada - Katar | Sigur væri gulls ígildi fyrir bæði lið Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Sjá meira