Hafna frestun kosninganna 13. október 2005 19:18
Hamas-samtökin hafa hafnað þeirri ákvörðun forseta Palestínu að fresta þingkosningum sem átti að halda um miðjan næsta mánuð. Hættuleg valdabarátta er fram undan. Valdabaráttan sem fylgir þeirri ákvörðun Mahmouds Abbas forseta að fresta kosningunum getur orðið hættuleg því það er regla frekar en undantekning hjá Hamas-samtökunum að grípa til vopna ef þau eru óænægð og nú segja liðsmenn þeirra að frestuninni sé eingöngu beitt gegn sér. Ekki er ólíklegt að Hamas-samtökin hafi nokkuð rétt fyrir sér í því að frestun kosninganna sé beint gegn þeim. Samtökin hófu þátttöku í stjórnmálum á síðasta ári og hafa í bæjar- og sveitastjórnakosningum unnið marga sigra á hinni spilltu Fatah-hreyfingu Jassers Arafats. Hamas segja nú að Abbas óttist að þau verði svo sterk á þingi að þau ráði þar lögum og lofum. Þau hafna því frestuninni og benda m.a. á að hún sé í andstöðu við Kaíró-samkomulagið. Hamas eru margslungin samtök. Þau hafa verið fremst í flokki í grimmilegum árásum á Ísrael og framið mörg viðurstyggileg hryðjuverk. Það er beinlínis á stefnuskrá þeirra að útrýma Ísraelsríki. Hins vegar reka þau skóla, sjúkrahús og félagsmiðstöðvar á svæðum þar sem fátækt er mikil. Auðvitað nota þau bæði skólana og félagsmiðstöðvarnar til þess að ala á hatri á Ísrael. En vegna harðlínustefnu sinnar og hjálparstarfsins njóta samtökin svo mikilla vinsælda meðal Palestínumanna að það er mjög líklegt að þau geti náð sterkri stöðu á þingi.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Fleiri fréttir Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Sjá meira