Vill fjölga yngri áhorfendum 28. maí 2005 00:01
Meðalaldur þeirra sem eiga árskort í Þjóðleikhúsinu er sextíu og tvö og hálft ár og fer hækkandi. Þeir, sem yngri eru, fá sér mun síður árskort. Þjóðleikhússtjóri segir að við þessu verði brugðist með aukinni fjölbreytni. Árskortasala hefur minnkað um rúmlega þriðjung á seinustu þremur árum. Tinna segir lítið hafa verið gert til þess að reyna að höfða til yngri aldurshópa en undanfarin þrjú ár hafa kortagestir elst um ár á ári. Tinna segir það ljóst að Þjóðleikhúsið hafi siglt lygnan sjó undanfarin ár og því verði að breyta. Þjóðleikhúsið sé jú sameign okkar allra og ekki gangi að aðeins fáir hópar hafi áhuga á því sem þar fari fram. Tinna segir enn fremur að eins og hún lesi úr stöðunni séu 75 prósent þeirra sem kaupi miða í Þjóðleikhúsið konur. Hún telji að sé hægt að sækja fleiri karlmenn í leikhúsið en fyrst og fremst meira af ungu fólki og hún muni leita leiða til þess. Tinna getur þó ekki nákvæmlega sagt til um hvernig hún ætli að leysa vandamál Þjóðleikhússins og segir vandamálið margþætt. Hún segir þó að til standi að stokka upp í leikarahópnum, hluti vandamálsins sé hversu einsleitur hópurinn er og það sjáist á áhorfendahópnum. Hún segir enn fremur að hún sjái fram á meiri sveigjanleika í leikararhópnum, sérstaklega eftir aðgerðirnar í marsmánuði. Hún ætli að reyna að breikka verkefnavalið og höfða meira til ungs fólks. Þá muni hún stuðla að því að auka þjónustuna á leikhúsinu og bæta aðgengismál auk veitingaþjónustu bæði fyrir og eftir sýningar. Þá verði fræðslustarf og barnastarf eflt til muna. Svo voni hún að fólk vilji koma og sjá þær sýningar sem boðið verði upp á. Tinna segir þó allt þetta kosta peninga, fjárhagsleg staða leikhússins sé slæm en er þó bjartsýn um að með meiri fjölbreytni sýninga muni fleiri áhorfendur koma í leikhúsið og þar af leiðandi muni fjárhagsstaðan batna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Fleiri fréttir Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Sjá meira