Krafist bankaábyrgðar 24. maí 2005 00:01
Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ kröfðu þá sem sóttu um byggingalóðir í Tröllateigshverfi árið 2003 um bankaábyrgð. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri segir ánægju hafa ríkt um þessa ákvörðun. "Við tókum þá ákvörðun að umsækjendur myndu sýna fram á bankaábyrgð fyrir heildarkostnaði framkvæmda á viðkomandi lóð. Við erum mjög ánægð með þá ákvörðun okkar því hverfið hefur byggst vel upp og okkur er ekki kunnugt um nein vandræði sem hlotist hafa af framkvæmdunum," segir Ragnheiður. Hún segir næstu úthlutanir í Mosfellsbæ vera í hinu nýja Krikahverfi og ekki hafi verið tekin formleg ákvörðun um hvort farin verði sama leið en hún ætti við jafnt fyrirtæki og einstaklinga. Fjöldi íbúa í Grafarholti í Reykjavík hefur lent í vandræðum vegna gjaldþrots verktaka og dæmi eru um að húseigendur hafi þurft að leggja út í mikinn kostnað og vinnu við að leita réttar síns. Eyjólfur Bjarnason, byggingatæknifræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, segir spurður um hvort slíkar reglur um bankaábyrgð séu ekki nauðsynlegar fyrir verktaka að SI hafi ekki leitt hugann að slíku. "Þetta er eitthvað sem er alveg hægt að athuga en trygging væntanlegs eiganda fyrir íbúð getur líka verið fólgin í því að greiðslum sé stillt í takt við það sem framkvæmt er. Þegar framkvæmdinni er lokið og ekki fyrr, eigi að vera hægt að greiða fyrir íbúðina," segir Eyjólfur. Hann bendir á að hér sé um ræða mál sem varði mikla hagsmuni og fara þurfi varlega í sakirnar. "Oft er um að ræða allt sparifé einstaklinga og fjölskyldna og það þarf að fara afar varlega í mál af þessum toga og við verðum að hafa í huga að fasteignasalar geta oft borið verulega ábyrgð," segir Eyjólfur.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira