Innlent

Morgunganga á vegum FÍ alla vikuna

Ferðafélag Íslands stendur þessa vikuna fyrir morgungöngum alla daga vikunnar. Gengið er alla morgna klukkan 6 á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Í gær var gengið á Helgafell, í morgun á Vífilsfell og í fyrramálið verður gengið á Trölladyngju. Síðan eru það Úlfarsfell á fimmtudagsmorgun og að lokum Esjuganga á föstudag. Öllum morgunhönum sem treysta sér í fremur létta göngu er heimil þátttaka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×