Gekk beinbrotinn að næsta bæ 22. maí 2005 00:01
Reyndir lögreglumenn telja það ótrúlega heppni að maðurinn skuli hafa sloppið lifandi þar sem bíllinn var verulega illa farinn. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, missti annan skóinn í veltunni og gekk 400 metra á einum skó uns hann tók hann af sér líka og gekk rúma tvo kílómetra á sokkaleistunum. Næturfrost var á þessum slóðum og allnokkur vindur sem maðurinn hafði í fangið á göngunni. Íbúar á bænum Fossnesi vöknuðu við að barið var hraustlega að dyrum klukkan sex í gærmorgun. "Við hrukkum upp úr rúminu og fórum til dyra og úti fyrir stóð bekkjarbróðir dóttur okkar, alblóðugur í andliti með stórt sár á höfðinu og á sokkaleistunum. Hann var greinilega stórslasaður," segir Sigrún Bjarnadóttir, bóndi á Fossnesi. "Hann var við fulla meðvitund og ósköp feginn að vera kominn til manna enda hafði hann verið hræddur um að sofna á leiðinni en það hefði sennilega gert út af við hann. Við hringdum á sjúkrabíl og maðurinn var sprautaður með morfíni enda sárþjáður. Þegar lögreglumennirnir komu voru þeir afar hissa að sjá hann sitjandi með fulla meðvitund inni í stofu, enda höfðu þeir séð hvernig bíllinn var leikinn. Einhverjir minntust á Guðlaug Friðþórsson úr Vestmannaeyjum í þessu samhengi." Sigrún segir manninn vera stæðilegan strák af mjög öflugu kyni enda standi að honum annáluð hreystimenni af Skeiðum. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild og reyndist þó nokkuð slasaður, með nokkur brotin bein, skorinn og lemstraður. Hann er ekki í lífshættu og þurfti ekki að fara í aðgerð en var lagður inn á spítalann til eftirlits. Bíllinn er gerónýtur. Lögreglan á Selfossi rannsakar nú tildrög slyssins en talið er að maðurinn hafi sofnað undir stýri.
Fréttir Innlent Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira