Sport

Útilokaður frá franska landsliðinu

Franski vandræðagemlingurinn Nicolas Anelka segir í viðtali við vikublaðið France Football að hann útiloki þann möguleika að hann muni leika með franska landsliðinu á meðan Raymond Domenech er þar við stjórnvölinn. Anelka sem fór frá Manchester City til tyrkneska liðsins Fenerbahce í janúar hefur ekki leikið landsleik eftir að hann neitaði að sinna síðbúnu landsliðskalli Jacques Santini þáverandi landsliðsþjálfara fyrir vináttuleik gegn Júgóslavíu í nóvember 2002. Anelka baðst síðar afsökunar á framkomu sinni en hefur þrátt fyrir það ekki verið valinn í hópinn síðan umrætt atvik átti sér stað. Þá lék hann heldur ekki með liðinu á HM 2002 þegar Roger Lemerre var landsliðsþjálfari og liðið skoraði ekki mark í keppninni. "Jafnvel þó að fjöldi leikmanna sé meiddur þá velur Domenech mig ekki í hópinn. Ég myndi frekar vilja að hann kæmi fram við mig af hreinskilni og segðist ekki getað treyst á mig en ég held að ég muni ekki leika með franska landsliðinu á meðan hann stýrir því." sagði Anelka. Aðspurður segir Anelka að rimmu hans við Domenech megi rekja aftur til ársins 1998 þegar hann lék með U21 árs landsliði Frakka þegar hann var aðeins 19 ára. "Ég var fastamaður í liði Arsenal á þeim tíma og Domenech tók mig úr U 21árs landsliðinu. Ég fór þá í U20 ára landsliðið þaðan sem ég var færður beint upp í aðalliðið. Það geta ekki margir státað af slíkum árangri." sagði hinn "hógværi" sóknarmaður. Anelka er ekki eini franski leikmaðurinn sem ber  Domenech ekki góða söguna en Robert Pires leikmaður Arsenal lét nýlega hafa eftir sér að þjálfarinn væri á góðri leið með að eyðuleggja landsliðið. Hann hefur skiljanlega ekki verið valinn í hópinn síðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×