Auðunn Jónsson Íslandsmeistari 16. apríl 2005 00:01
Kópavogströllið Auðunn Jónsson náði sögulegum árangri á mótinu í gær, þegar hann varð fyrsti Íslendingurinn til að lyfta yfir 1100 kílóum í samanlögðu og sigraði með glæsibrag, eftir sögulegt einvígi við hinn kornunga Benedikt Magnússon. Benedikt sagði fyrir mótið að Auðunn myndi þurfa á öllu sínu besta til að sigra og það kom á daginn, því Auðunn náði hámarksárangri í öllum greinum og setti glæsilegt Íslandsmet. Auðunn setti tóninn á mótinu með því að slá eigið Íslandsmet í hnébeygju í fyrstu tilraun og með því var ljóst hvert stefndi. Hann hætti ekki fyrr en hann hafði bætt Norðurlandametið í greininni og lyfti best 432,5 kílógrömmum. Í bekkpressunni heppnaðist fyrsta lyftan hans ekki sem skyldi, en hann hristi af sér slenið og snaraði upp 300 kílóum, fyrstur Íslendinga. Benedikt var ekki langt undan í fyrstu greinunum og var að bæta sig vel. Þá var aðeins réttstöðulyftan eftir og þar vippaði Benedikt upp 410 kílóum í fyrstu lyftu sinni og bætti með því eigið Íslandsmet um 10 kíló. Þá voru næst á stöngina 425 kíló, sem hefðu tryggt honum heimsmetið í greininni, en upp vildi stöngin ekki að þessu sinni. Það var því Auðunn Jónsson sem hafði sigur í þungavigtinni með því að lyfta 1.117,5 kílóum í samanlögðu. Benedikt hafnaði í öðru sæti og tók 1.090 kíló, sem er mikil bæting hjá honum, og þriðji varð Kristinn Óskar Haraldsson með 960 kíló í samanlögðu. Þetta er besti árangur sem náðst hefur á Íslandsmóti frá upphafi og var það vel við hæfi á 20 ára afmæli Kraftlyftingasambandsins. Auðunn Jónsson var himinlifandi með árangurinn á mótinu. "Það var allt að ganga upp hjá mér og ég kom sjálfum mér á óvart í hnébeygjunni. Það var líka gott að ná loksins í 300 kílóin í bekknum og þetta mót var bara frábært í alla staði. Það er gaman að hafa þessa góðu samkeppni, troðfullt hús af fólki og frábæra stemmningu," sagði Auðunn, sem náði öðrum besta árangri allra tíma í samanlögðu á mótinu í gær.
Íþróttir Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Keflavík - FH | Erfið heimsókn til Keflavíkur. Ísak Bergmann trúlofaður Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Sjá meira