Björn yngsti atvinnumaðurinn? 15. apríl 2005 00:01
Að undanförnu hafa stjórnendur hollenska úrvalsdeildarliðsins Heerenveen sýnt mikinn áhuga á að fá einn efnilegasta leikmann ÍA, Björn Jónsson, til liðs við félagið. Björn, sem er fæddur 1990, leikur með 3. flokki ÍA og er eins og áður sagði einn af efnilegustu knattspyrnumönnum okkar Íslendinga. Hann hefur t.d. verið valinn í úrtakshóp í sínum árgangi vegna vals í drengjalandsliðið og svo gæti farið að Björn færi utan til Heerenveen strax í sumar og yrði hann þar með yngsti atvinnumaður Íslands frá upphafi. Til marks um áhuga hollenska liðsins á því að fá Björn til félagsins hefur hann t.a.m. tvívegis heimsótt félagið og dvaldi hann m.a. í herbúðum þess um sl. páska og hrifust forráðamenn Heerenveen mjög af hæfileikum hans. Heerenveen, sem er eitt af sterkustu knattspyrnufélögum Hollands, hefur getað sér gott orð fyrir gott unglingastarf og alið af sér sæg góðra knattspyrnumanna og nægir þar að nefna leikmenn eins og Ruud Van Nistleroy, Jon Dal Tomasson, auk Svíanna Markus Allbäck og Erik Edman. Undanfarin ár hefur félagið jafnframt lagt mikla rækt við aðallið félagsins og hefur átt sér stað gríðarleg uppbygging hjá félaginu undanfarin ár. Ef af því yrði að Björn gengi til liðs við félagið yrði hann annar leikmaður ÍA á skömmum tíma sem mundi semja við félagið því fyrir er einmitt Skagamaðurinn Arnór Smárason. Arnór, sem er fæddur 1988, hefur verið á mála hjá Heerenveen síðan í janúar 2004 og leikið bæði með U-17 og U-19 ára unglingaliðum félagsins. Arnór, sem á að baki nokkurn fjölda leikja með unglingalandsliðum Íslands og skorað í þeim 2 mörk, hefur á þeim tíma sem hann hefur verið hjá félaginu skipað sér á bekk með efnilegustu leikmönnum félagsins, sem þó státar af miklum fjölda unglingalandsliðsmanna frá löndum eins og Danmörku, Austurríki, Póllandi, Króatíu og Hollandi. Unglingalið félagsins eru ávallt í fremstu röð í Hollandi og veita stórliðunum Ajax, Feyernoord og PSV Eindhoven harða keppni á þeim vettvangi. Það verður því mjög spennandi að fylgjast með framgangi mála hjá þeim félögum á næstunni. Þessi frétt birtist á www.ia.is/kia
Íslenski boltinn Mest lesið Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Fótbolti Fleiri fréttir „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Hato mættur á Brúnna Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Partey á leið til Villareal þrátt fyrir nauðgunar ákærur Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Sjá meira