Menning

Hvernig verður maður...

Kvikmyndagerðarfólk starfar við kvikmynda- og auglýsingagerð eins og starfsheitið gefur að nokkru leyti til kynna. INNTÖKUSKILYRÐI Nemandi þarf að lágmarki að hafa lokið 30 einingum í framhaldsskóla en nemendur með stúdentspróf af upplýsinga og tæknibrautum, listnámsbrautum eða með sveinspróf í tæknigreinum, smíði eða hönnun, ganga fyrir. Teknir eru inn 12 nemendur á önn vor og haust, og valið er inn eftir inntökuviðtölum. Ekki er gerð krafa um reynslu í kvikmyndagerð. NÁMIÐ Kvikmyndagerð er kennd við Kvikmyndaskóla Íslands sem er til húsa að Laugavegi 176, þar sem Sjónvarpið hafði starfsemi sína áður. Hluti kennslunnar fer einnig fram hjá sjónvarpsstöðvum og kvikmyndafyrirtækjum sem staðsett eru víðsvegar um borgina. Námið tekur tvo vetur eða 4 annir. Seinni veturinn er að hluta starfsþjálfun hjá framleiðslufyrirtækjum og sjónvarpsstöðvum Námið er framleiðslutengt og meginhluti þess á verklegar æfingar af ýmsu tagi. Nemendur búa til kvikmyndir og sjónvarpsefni og nýta þannig þá fræðilegu þekkingu sem þeir öðlast í fyrirlestrum, til leysa raunveruleg verkefni (sjónvarpsþættir, heimildarmyndir, tónlistarmyndbönd, margmiðlunarverkefni, leiknar sjónvarpsmyndir, stuttmyndir o.s.frv). Í upphafi er lögð áhersla á að nemendur öðlist skilning á myndmáli og framleiðsluferli kvikmynda. Síðar beinist námið að hnitmiðaðri tæknikennslu þar sem nemendur eru undirbúnir fyrir störf í hinum margþætta kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði. HELSTU NÁMSGREINAR:   Auglýsingar Efnisfræði Framleiðsla Handritsgerð Heimildamyndir Inngangur að sjónvarpsfræðum Inngangur að kvikmyndafræðum Myndmál og meðferð þess Kvikmyndaverk Nýjasta tækni og vísindi Samningar og kjör Skoðun kvikmynda Sjónvarpsþættir og fréttavinnsla Skipulag og stjórnun. Starfsþjálfun Taktur og tími Tónlistarmyndbönd Tæki og tækni í kvikmyndagerð Útlit myndar FRAMHALDSNÁM:   Hægt er að stunda frekara framhaldsnám víða erlendis. Þekktustu skólarnir eru í New York, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×