Yfirvöld íhuga að banna mótmæli 14. mars 2005 00:01
Fjölmennustu mótmæli í sögu Líbanons fóru fram í dag þegar tæp milljón andstæðinga Sýrlendinga gekk um götur höfuðborgarinnar. Yfirvöld í Líbanon virðast hins vegar hafa fengið nóg af þessari borgarabyltingu og íhuga að setja hömlur á frekari mannsöfnuði. Líbanar gera fátt annað þessa dagana en ganga um götur Beirút, annaðhvort til að mótmæla veru sýrlenska hersins í landinu eða til að sýna Sýrlendingum stuðning. Tæplega ein milljón manna safnaðist saman í miðborginni í dag í tilefni af því að mánuður er liðinn frá því forsætisráðherra landsins, Rafik Hariri, var ráðinn af dögum, að því að talið er að undirlagi Sýrlandsstjórnar. Mannfjöldinn mótmælti veru sýrlenska hersins í Líbanon og er talið að þetta sé fjölmennasta mótmælaganga í sögu landsins, mun fjölmennari en ganga sem stuðningsmenn Sýrlendinga stóðu fyrir í höfuðborginni í síðustu viku, að undirlagi Hizbollah-samtakanna. Það má segja að með þessu séu íbúar landsins að láta í ljós vilja sinn í ofbeldislausri borgarabyltingu og svo virðist sem þetta sé að verða æ algengari framgangsmáti í þeim löndum þar sem fólk býr við takmarkað lýðræði. Skemmst er að minnast appelsínugulu borgarabyltingarinnar í Úkraínu og rósabyltingarinnar í Georgíu. Í báðum tilvikum fengu íbúar í gegn breytingar á stjórnarfyrirkomulagi landanna með friðsamlegum en þrálátum mótmælagöngum. Nú er að sjá hvort eitthvað slíkt gerist í Líbanon. Það gæti brugðið til beggja vona því yfirvöld íhuga að banna mótmælasamkomur frá og með deginum í dag. Þau vilja hvetja fólk til að koma skoðunum sínum á framfæri á annan hátt, til dæmis með samningaviðræðum á milli stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Fleiri fréttir Forsetarnir tveir funda Einn látinn eftir alvarlegt lestarslys í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Sjá meira