Menning

Sumarvinna unga fólksins

Opnuð hefur verið vinnumiðlun unga fólksins í Hafnarfirði í Gamla bókasafninu við Mjósund. Vinnumiðlunin er á vegum Íþrótta- og tómstundanefndar Hafnarfjarðar og mun hún einnig hafa umsjón með ráðningum í sumarstörf  fyrir fólk á aldrinum sautján til tuttugu ára á vegum ÍTH og garðyrkjustjóra. Vinnumiðlunin er opin mán-, þriðju- og miðvikudögum frá 10 til 16. Tekið verður við umsóknum í Gamla bókasafninu frá og með til 8. apríl 2005. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hvetja fyrirtæki í bænum að nýta sér þessa þjónustu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×