Hamas taka þátt í kosningunum 13. október 2005 18:54
Hamas-samtökin ætla að taka þátt í þingkosningum í Palestínu í sumar og verður rétturinn til vopnaðrar baráttu efst á stefnuskránni. Þetta gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir friðarferlið. Leiðtogar Hamas greindu í morgun frá því að stefnt væri að þátttöku í þingkosningunum sem fram eiga að fara sautjánda júlí næstkomandi. Búist var við yfirlýsingunni en þetta eru engu að síður mikil tíðindi og gætti þýtt að Hamas keppi við Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbas, forseta Palestínu. Í bæjar- og héraðskosningum í janúar bar Hamas sigurorð af Fatah. Hreyfingin hlaut mikinn meirihluta sæta á Gasa-ströndinni, alls sjötíu og sjö kjörna fulltrúa af hundrað og átján, og á Vesturbakkanum hlaut Hamas þrjátíu prósenta fylgi. Stjórnmálaskýrendur lesa ýmislegt úr ákvörðun Hamas, til að mynda að þetta skref þýði að leiðtogar samtakanna hafi áhuga á þátttöku í hefðbundnum stjórnmála og vilji þannig hafa áhrif. Það gæti leitt til þess að stefna Hamas mildaðist nokkuð, og ef ekki er næsta víst að þátttaka Hamas í stjórnmálum hefði alvarleg áhrif á friðarferlið. Það er grundvallarstefna Hamas að sjá til endaloka Ísraelsríkis, og leiðtogar samtakanna sögðu í morgun að grundvöllur stefnunnar í þingkosningum væri einmitt réttur Palestínumanna til að halda vopnaðri baráttu áfram þar til landnámi Ísraela á svæðum Palestínumanna lýkur. Hamas-samtökin njóta töluverðra vinsælda meðal Palestínumanna og því allt eins líklegt að samtökunum vegni vel í kosningunum. Fari svo, er ljóst að það grefur verulega undan friðarstefnu Mahmoud Abbas, forseta Palestínu.
Erlent Fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira