Hart deilt um frumvarp í Bretlandi 10. mars 2005 00:01
Hatrömm kosningabarátta er hafin í Bretlandi og endurspeglast hún í gríðarhörðum deilum um frumvarp bresku ríkisstjórnarinnar um varnir gegn hryðjuverkum. Breska ríkisstjórnin verður lögum samkvæmt að boða til þingkosninga fyrir maílok. Þótt dagsetningin hafi enn ekki verið ákveðin nákvæmlega er nú allt breskt stjórnmálalíf farið að snúast um kosningarnar og hatrammar deilur á milli stjórnmálaflokkanna þriggja sem berjast um þingsætin. Eitt helsta deilumálið nú er afar umdeilt frumvarp ríkisstjórnarinnar um varnir gegn hryðjuverkum sem meðal annars gengur út á það að skerða lýðréttindi manna. Tony Blair forsætisráðherra hefur snúist í afstöðu sinni til þessara mála því þegar hann hóf fyrst afskipti af pólitík var hann ákafur talsmaður þess að yfirvöld mættu alls ekki takmarka frelsi fólks vegna hagsmuna ríkisins. Nú hins vegar segir Blair að öryggi ríkisins og þjóðarinnar sé ofar réttindum einstaklingsins, hryðjuverkahættan sé svo mikil að ekki verði hjá því komist að bregðast við með því að auka heimildir löggæslumanna til dæmis til að handtaka og halda fólki í stofufangelsi. Fulltrúadeild breska þingsins samþykkti í gærkvöldi þetta hryðjuverkafrumvarp eftir að ríkisstjórnin hafði gert á því nokkrar breytingar til að koma til móts við gagnrýnisraddir. Í þessum töluðu orðum stendur yfir umræða um frumvarpið í lávarðadeildinni og alls er óvíst hvort það rennur þar í gegn. Stjórnvöld leggja mikið upp úr því að frumvarpið verði að lögum fyrir vikulok þegar núverandi lög gegn hryðjuverkum falla úr gildi. Takist ekki að fá frumvarpið samþykkt er hugsanlegt að það verði að sleppa nokkrum föngum sem verið hafa í haldi í þrjú ár í tengslum við árásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001.
Erlent Fréttir Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Sjá meira