Sögð óvelkomin í Hvíta húsið 9. mars 2005 00:01
Það nýjasta af giftingaráformum Karls Bretaprins og Camillu Parker-Bowles er að þau hafa verið úrskurðuð lögleg. Þó er fjarri því að allir séu sáttir við þau. Á þriðjudag úrskurðaði embætti það sem heldur utan um hjúskaparskráningar í Englandi og Wales að vísa skyldi frá þeim lagalegu mótbárum sem lagðar hefðu verið fram við borgaralegri giftingu Karls og Camillu. Ætlunin er að hún fari fram í Windsor, vestan Lundúna, þann 8. apríl. Óbilandi vinsældir Díönu prinsessu heitinnar, sem Karl var skilinn við áður en hún lést af slysförum fyrir sjö og hálfu ári, valda því að ýmsir líta svo á að brúðkaup Karls og Camillu sé vanvirðing við minningu Díönu. Aðdáendur hennar hyggjast leggja blómsveig að Kensington-höll, bústað Díönu síðustu æviárin, daginn sem Karl gengur að eiga Camillu (en hana kalla Díönuaðdáendurnir "Kúmillu"). Engin fordæmi eru fyrir því að breskur ríkisarfi giftist utan kirkjunnar, en það er talin eina leiðin fyrir Karl og Camillu þar sem Enska biskupakirkjan er mjög treg til að leggja blessun sína yfir giftingar fráskilins fólks. Camilla skildi við sinn fyrri eiginmann. Af þessari sömu ástæðu kvað George W. Bush Bandaríkjaforseti hafa ákveðið að Karli og Camillu skyldi ekki boðið til kvöldverðar í Hvíta húsinu, en um alllangt skeið hefur opinber heimsókn ríkisarfans til Bandaríkjanna verið undirbúin. Til stóð að þetta yrði fyrsta opinbera ferðin sem þau færu í eftir hjónavígsluna. Breska blaðið Sunday Mirror greinir frá því að fulltrúar Hvíta hússins hafi tilkynnt bresku hirðinni að Camilla væri ekki velkomin í Hvíta húsið. Forsetinn strangkristni hafi tjáð aðstoðarmönnum að hann álíti það "óviðeigandi" fyrir sig að taka á móti nýgiftu hjónunum. Segir blaðið þetta koma undirbúningi ferðarinnar í uppnám.
Erlent Fréttir Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Fleiri fréttir Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Sjá meira