Ógiftar konur greindari en giftar 8. mars 2005 00:01
Ógiftar konur eru greindari en þær giftu. Það er þó ekki hjónabandið eða samlífið við karlmenn sem dregur svona úr greindinni, heldur eru karlar hræddir við gáfaðar konur. Viðamikil rannsókn sem staðið hefur í 40 ár leiðir þetta í ljós. Nútímakonan er gjarnan sögð vera gáfuð, framagjörn og með góðar tekjur. Hún gæti hins vegar orðið fórnarlamb eigin velgengni í einkalífinu og átt erfiðara með að finna sér lífsförunaut en aðrar konur. Þetta má lesa út úr niðurstöðum rannsóknar vísindamanna við fjóra breska háskóla sem fyrir 40 árum mældu greind 900 ellefu ára barna. 40 árum síðar var svo kannað hvernig þessu fólki hafði reitt af í lífinu. Niðurstöðunum má lýsa svona: Hjá konum þýddi aukin greind minni líkur á hjónabandi og hjá körlum þýddi aukin greind meiri líkur á hjónabandi. Í ljós kom nefnilega að fyrir hver 16 stig sem bættust við greindarvísitölu stúlknanna dró úr líkum þeirra á hjónabandi um 40 prósent. Þessu var öfugt farið með mennina. Fyrir hver 16 stig sem bættust við þeirra greindarvísitölu, jukust líkur þeirra á hjónabandi um 35 prósent. Vísindamennirnir skýra þetta með því að karlmenn séu einfaldlega hræddir við vel gefnar konur sem vegni vel og að þeir vilji vera vissir um að stjórna í hjónabandinu. Önnur rannsókn Háskólans í Michigan í Bandaríkjunum styður þessar niðurstöður en þar eru vísbendingar um að karlar vilji giftast konum sem séu í lægri stöðum en þeir þar sem þeir telji að konur á framabraut séu líklegri en hinar til framhjáhalds.
Erlent Fréttir Mest lesið Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Innlent „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Erlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Herjólfur siglir ekki meira í dag Innlent Fleiri fréttir Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Létu sprengjum rigna á Kænugarð Segja 30 hafa látist í skotárás Ísraelshers við dreifingu neyðargagna Kanada í hóp þeirra sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu Sjö dáið úr hungri síðasta sólarhringinn Rannsaka tengsl þyngdarstjórnunarlyfja við bráða brisbólgu Gargaði á flokksfélaga sína Fyrsta ástralska geimflaugin flaug í fjórtán sekúndur Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn Vill greiða sex milljarða tryggingu til að losna úr haldi Pokrovsk riðar til falls Sjá meira