Konur betri bílstjórar 8. mars 2005 00:01
Ef allir ökumenn keyrðu eins og konur þá yrðu færri dauðaslys í umferðinni. Þetta er í grófum dráttum meginniðurstaða nýrrar rannsóknar sænsku umferðarstofnunarinnar. Í niðurstöðum skýrslu sænsku umferðarstofnunarinnar kemur fram að stór hópur karlbílstjóra taki meiri áhættu í umferðinni en konur. Tölfræðin styður þá staðhæfingu þar sem í ljós kemur að karlmenn sitja undir stýri í átta af hverjum tíu banaslysum í umferðinni. Á meðal þess sem tínt er til um hættulega hegðun karla er að það eru yfirleitt karlar sem aka bílum sem lenda í banaslysum sem rekja má til framúraksturs. Sænska umferðarstofnunin segir að niðurstöður rannsóknarinnar sé ekki hægt að útskýra með því að karlar aki meira en konur. Jafnvel þegar sá þáttur er leiðréttur og jafnaður kemur í ljós að það eru tvisvar sinnum meiri líkur á að karlar láti lífið í bílslysum en konur. Forstjóri sænsku umferðarstofunnar styður niðurstöður rannsóknarinnar. Hann segir konur taka minni áhættu í umferðinni, en að hegðun þeirra líkist þó æ meir hegðun karlanna. Það lýsi sér í því að stöðugt fleiri konur eru stöðvaðar og sektaðar fyrir of hraðan akstur. Hins vegar séu þær enn til fyrirmyndar á flestum sviðum aksturs. Það sé til að mynda undantekning að konur séu teknar ölvaðar undir stýri eða valdi slysum vegna ölvunar. Hins vegar samþykki allt of margar konur að eiginmaðurinn aki fullur heim úr veislunni, vitandi vits að hann sé ekki í ökuhæfu ástandi, segir forstjóri sænsku umferðarstofunnar. En besta ráðið til að fækka slysum samkvæmt þessari skýrslu er einfaldlega þetta: Strákar! Keyrum eins og stelpurnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Sjá meira